B.11 Fluggáttir
Aðgerðin er í vinnslu | |
---|---|
Tengiliður
Helena Karlsdóttir, Ferðamálastofu - [email protected]
Fréttir
20.02.23 Með fjárlögum ársins 2023 ákvað Alþingi að veita 150 m.kr. varanlegt framlag til að viðhalda starfsemi Flugþróunarsjóðs.
13.07.22 Fljúga frá Þýskalandi til Akureyrar og Egilsstaða
Verkefnið
Markmið: Að ferðamenn dreifist jafnar um landið.
Stutt lýsing: Flugþróunarsjóður styðji við uppbyggingu nýrra flugleiða til Íslands þannig að koma megi á reglulegu millilandaflugi um alþjóðaflugvellina á Akureyri og Egilsstöðum. Árangur verði mældur í fjölgun ferðamanna sem koma með flugi/fjölda lendinga.
- Ábyrgð: Menningar- og viðskiptaráðuneytið.
- Framkvæmdaraðili: Flugþróunarsjóður.
- Dæmi um samstarfsaðila: Innviðaráðuneyti, Isavia, landshlutasamtök sveitarfélaga og áfangastaðastofur.
- Tímabil: 2022–2026.
- Tillaga að fjármögnun: Menningar- og viðskiptaráðuneyti.